Olía-og-eða leysiefni í vatni

Sýnatökuleiðbeiningar fyrir mælingu á olíu- og/eða leysiefnum í vatni

  • Æskilegt sýnamagn er 0,5 – 1 lítri af vatni fyrir mælingu á olíuefnum og 50 – 250 ml fyrir mælingar á leysiefnum.
  • Sýnatökuflöskur (glerflöskur) ásamt töppum skulu vera vel þvegnar og skolaðar vandlega til að losna við allar sápuleifar.
  • Aðferð við sýnatöku er háð tilgangi rannsóknar og aðstæðum á vettvangi, hafið samband við rannsóknastofuna ef þörf er á nánari leiðbeiningum.
  • Fyllið flöskurnar varlega og forðist að loftbólur fari ofan í vatnið.
    Stútfyllið þær þannig að ekki sé loftrúm milli tappans og vatnsins.
  • Verði sýnin ekki mæld innan 48 klst þarf að sýra vatnið með um 1 ml/L af 1:1 HCl.
  • Kælið sýnin og komið þeim á rannsóknastofuna eins fljótt og hægt er.
    Gott er að láta vita fyrirfram hvenær von sé á sýnum.
  • Hámarksgeymslutími í kæli er 48 klst. fyrir ósýrt vatn og 14 dagar fyrir sýrt vatn.
  • Sýnum þarf að fylgja skrifleg beiðni (má einnig vera tölvupóstur) þar sem fram kemur hvað á að mæla og hvert á að senda niðurstöður og reikning.