Um Rannsóknastofu í lyfja og eiturefnafræði
Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði
Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði (RLE) heyrir undir Heilbrigðissvið Háskóla Íslands.
RLE er ISO 9001 vottað í staðlinum um gæðastjórnunarkerfi. RLE hefur verið vottað í ISO 140001 umhverfisstaðlinum og í ISO 45001 staðlinum um heilbrigði og öryggi á vinnustað.
Hjá RLE starfa um 20 manns en stofan sinnir margvíslegum réttarefnafræðilegum rannsóknum fyrir lögreglu og dómsyfirvöld. Stærsti hluti mála RLE er leit og mælingar á alkóhóli, ávana- og fíkniefnum og lyfjum í líf- og efnissýnum. Stór þáttur er túlkun og mat mæliniðurstaðna og vitnisburður í dómsmálum sé þess óskað. Þá heldur RLE utan um ýmiss konar mengunar- og eiturefnamælingar í umhverfi og lífverum.
Starfsfólk RLE sinnir einnig kennslu í Háskóla Íslands á sviði líflyfjafræði og eiturefnafræði. Auk þess skipa vísindarannsóknir æ stærri sess í starfi stofunnar og birta vísindamenn hennar greinar í alþjóðlegum vísindatímaritum og taka þannig þátt í að skapa nýja þekkingu í fræðigrein sinni. Þá er einnig lögð áhersla á veita verðandi vísindamönnum tækifæri til að taka þátt í rannsóknum í gegnum meistara- og doktorsnám innan Háskólans.
Stjórn og starfsfólk
Í stjórn RLE skal skipa fimm einstaklinga:
• Forstöðumaður fræðasviðs lyfja- og eiturefnafræði innan læknadeildar er formaður stjórnar.
• Fulltrúi skipaður af fræðasviðsforseta HVS til fjögurra ára.
• Forstöðumenn RLE:
o Yfirmaður þjónusturannsókna.
o Yfirmaður vísindalegra rannsókna í tengdu starfi á RLE.
• Einn fulltrúi starfsfólks RLE kosinn á starfsmannafundi til tveggja ára.
Forstöðumenn Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði:
Elísabet J. Sólbergsdóttir
Gæðastjóri á Heilbrigðisvísindasviði
Krisín Ólafsdóttir
Dósent á Heilbriðgðisvísindasviði
Nafn | Starfssvið | Sími | Netfang | |
---|---|---|---|---|
Adam Erik Bauer | Verkefnastjóri LC-MSMS | 525-5130 | adameb(hjá)hi.is | |
Alexandra Almaxaeva | Sérfræðingur lífsýnasvið | 525-5130 | alexa(hjá)hi.is | |
Ása Eiríksdóttir | Sérfræðingur umhverfis- og eiturefnasvið | 525-5130 | asav(hjá)hi.is | |
Ásdís Elva Aðalsteinsdóttir | Skrifstofustjóri og starfsmannamál | 525-5130 | aelva(hjá)hi.is | |
Björn Þorgilsson | Verkefnastjóri alkóhóla, vefstjóri | 525-5135 | bjornth(hjá)hi.is | |
Brynja Björk Baldursdóttir | Verkefnastjóri GC-MS | 525-5130 | brynjabb(hjá)hi.is | |
Elín V. Magnúsdóttir | Verkefnastjóri hugbúnaðarmála, umhverfis- og eiturefnasvið, gæðamál | 525-5130 | elinmag(hjá)hi.is | |
Elísabet J. Sólbergsdóttir | Forstöðumaður, Gæðastjóri | 525-5130 | betajona(hjá)hi.is | |
Hildur Sæmundsdóttir | Sérfræðingur lífsýnasvið | 525-5130 | hildurs(hjá)hi.is | |
Ingibjörg G. Magnúsdóttir | Rannsóknamaður | 525-5130 | im(hjá)hi.is | |
Ingibjörg Halla Snorradóttir | Verkefnastjóri efnissýnasvið | 525-5130 | inghalla(hjá)hi.is | |
Kristín Ólafsdóttir | Forstöðumaður, Dósent, fræðslumál RLE | 525-5122 | stinaola(hjá)hi.is | |
Margrét Rún Jakobsdóttir | Verkefnastjóri lífsýnasvið | 525-5130 | margretj(hjá)hi.is | |
María Erla Bogadóttir | Verkefnastjóri lífsýnasvið | 525-5130 | merla(hjá)hi.is | |
Sólveig Sif Halldórsdóttir | Verkefnastjóri lífsýnasvið | 525-5130 | solasif(hjá)hi.is | |
Svava Þórðardóttir | Verkefnastjóri krufninga | 525-5130 | svavahth(hjá)hi.is | |
Unnur Elísabet Stefánsdóttir | Sérfræðingur efnissýnasvið | 525-5130 | unnures(hjá)hi.is | |
Valþór Ásgrímsson | Verkefnastjóri efnissýnasvið | 525-5130 | valthor(hjá)hi.is |
Viðhalda gæðastjórnunarkerfi í samræmi við kröfur ISO 9001. Hafa skal einnig kröfur rannsóknastaðalsins ISO 17025 að leiðarljósi.
Uppfylla lagalegar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar hverju sinni.
Vera leiðandi á sviði lyfja-, ávana- og fíkniefna og eiturefnamælinga á Íslandi. Veita góða og sveigjanlega þjónustu þar sem unnið er eftir vel skilgreindum verkferlum með það að markmiði að tryggja framúrskarandi gæði.
Stjórnendur tryggi gott upplýsingaflæði og sjái til þess að allir starfsmenn séu vel þjálfaðir, skilji og tileinki sér gæðastefnu RLE og vinni sem ein heild við að framfylgja henni.
Stjórnendur sem og allir starfsmenn séu meðvitaðir um að greina áhættur og líti á ábendingar, ytri sem innri, sem tækifæri til stöðugra endurbóta.
Skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi og sýna samfélagslega ábyrgð.
RLE hefur innleitt umhverfis-, heilsu og öryggisstaðlanna, ISO 14001 og ISO 45001 og er vottuð rannsóknastofa.
RLE hefur innleitt Grænu skrefin 5 og tekið þannig þátt í átaki ríkisstofnana um að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna sinna.
RLE stefnir að því að vera til fyrirmyndar í öryggis-, heilsu og umhverfismálum með því að tryggja öllum starfsmönnum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi og sýna umhverfislega ábyrgð.
Virðing og samráð við starfsfólk um leiðir til að ná settum markmiðum um slysalausan vinnustað þar sem enginn starfsmaður bíður líkamlegt né andlegt heilsutjón af starfi sínu.
Virðing gagnvart umhverfinu með því að fara vel með auðlindir, velja umhverfisvæna kosti, lágmarka úrgang og losun gróðurhúsalofttegunda, hámarka endurvinnslu og stuðla að aukinni sjálfbærni.
Vera til fyrirmyndar og uppfylla allar lagalegar kröfur.
Rannsóknastofa í lyfafræði var stofnuð 1939 og var Kristinn Stefánsson, læknir og kennari við læknadeild (og síðar prófessor) fyrsti forstöðumaður hennar.
Þjónusturannsóknir á sviði réttarefnafræði (ákvarðanir á lyfjum og eiturefnum) hófust árið 1966 í samráði við prófessor í réttarlæknisfræði við læknadeild. Umfang þessarar starfsemi jókst mjög á næstu árum og árið 1974 var formlega stofnuð réttarefnafræðideild við rannsóknastofuna.
Kennsla hefur ætíð verið einn veigamesti þáttur í starfsemi fræðasviðsins. Fastir kennarar læknadeildar í líflyfjafræði (pharmacology) og eiturefnafræði (toxicology) hafa ætíð átt heimahöfn innan rannsóknastofunnar. Lengst af hefur kennsla læknanema verið fyrirferðarmest í kennslunni en einnig hafa kennarar rannsóknastofunnar sinnt kennslu innan tannlæknadeildar og hjúkrunarfræðideildar. Markmið með kennslu í líflyfjafræði (medical pharmacology) er að veita nemum fræðslu um helstu lyf og lyfjaflokka, sem notaðir eru við lækningar. Segja má í hnotskurn, að líflyfjafræði fjalli um það, hvað lyfin gera í líkamanum (lyfhrifafræði) og hvað líkaminn gerir við lyfin (lyfjahvarfafræði).
Vísindarannsóknir innan líflyfjafræði og eiturefnafræði skipa sífellt stærri sess innan RLE. Mikil áhersla er lögð á að fræðasviðið taki þátt í að auka veg vísinda innan háskólans í samræmi við stefnu skólans. Í því sambandi er lögð áhersla á veita verðandi vísindamönnum tækifæri á að taka þátt í rannsóknum í gegnum meistara- og doktorsnám innan skólans. Vísindamenn rannsóknastofunnar birta vísindagreinar í alþjóðlegum vísindatímaritum og taka þannig þátt í að skapa nýja þekkingu í fræðigrein sinni.