Akstur undir áhrifum
Sýnataka vegna aksturs undir áhrifum
Hæfni til aksturs er alltaf metin út frá mælingum í blóði.
Akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða lyfja:
- Blóð: 15-20 ml (3-4 blóðsýnaglös), í sýnatökuglös með rot- og storkuvörn.
- Þvag: 10 ml, ef þess er nokkur kostur. Skimun í þvagi er einfaldari en í blóði.
Beiðni um mælingar skal byggja á upplýsingum um hugsanleg ávana- og fíkniefni og/eða lyf og niðurstöðum forprófa. Á beiðni þarf einnig að koma skýrt fram ósk um mat á hæfni til aksturs.
Stöðugleiki nokkurra lyfja og fíkniefna í blóðsýnum er takmarkaður og því er æskilegast að geyma sýni í kæli og senda sem allra fyrst til Rannsóknastofunnar.
Ölvunarakstur
Ökumaður stöðvaður í akstri:
- 4-5 ml af blóði (1 sýnaglas, með rot- og storkuvörn).
Ökumaður tekinn eftir að akstri lauk:
- Taka þarf 2 blóðsýni (4-5 ml) með um klukkustundar millibili og þvagsýni sem næst fyrri sýnatökutíma.