GUL VIÐVÖRUN
Falsaðar OxyContin töflur í umferð
- Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands hefur greint falsaðar 80 mg OxyContin töflur í dreifingu á Íslandi. Töflurnar innihalda ekki oxycodone.
- Töflurnar innihalda parasetamól, koffein, kódein, klónazepam, biperiden og ketorolac.
- Töflurnar sem greindar voru komu frá Norðurlandi og Höfuðborgarsvæðinu.
- Töflurnar líkjast mjög venjulegum OxyContin 80 mg töflum, stimplaðar ”OC” og ”80” en fölsuðu töflurnar eru þykkari og filmuhúðin er lausari í sér.
- Rétt þykir að senda út gula viðvörun sérstaklega í ljósi þess að áhrif geta verið mjög ófyrirsjáanleg og valdið alvarlegum heilsufarsáhrifum.
Ávalt skal hringja á Neyðarlínu 112 vegna gruns um ofskömmtun.
Gefa skal Naloxone (Nyxoid nefúða) ef grunur er um ofskömmtun ópíóíða og alltaf hringja í Neyðarlínu 112 eftir gjöf á Naloxone.
Dags. 16. júlí 2025
Frá starfshópi um samræmingu gagna og snemmbúnar viðvaranir við fíkniefnafaraldri.