Header Paragraph
Ruslatínsla haust 2021
Ákveðið á skipulagsfundi 13. september, í tilefni dags íslenskrar náttúru (16.september), að tína rusl í nágrenni vinnustaðarins.
Hópnum var skipt í tvennt og hvor hópur fór eitt skipti á næstu vikum.
Annar hópurinn fór af stað 15. september og tíndi rusl við Ægisíðu. Hinn hópurinn fann góðan veðurglugga 1. október og tíndi rusl við Kaplaskjólsveg, Einimel og hjá sundlaug Vesturbæjar.
Hvor hópur var í um hálftíma við tínsluna.