Header Paragraph

Hjólað í vinnuna

Image
Liðið Hagi – klikkaðir kílómetrar, þrír starfsmenn á reiðhjólum

Liðið Hagi – klikkaðir kílómetrar kom, sá og sigraði í innanhúskeppni Háskóla Íslands sem haldin var í tengslum við átakið Hjólað í vinnuna í maímánuði.

Átakið fór fram dagana 5.-25. maí 2021 en markmið þess er að hvetja fólk til þess að nota umhverfisvænan samgöngumáta á leið til vinnu.

Í innanhúskeppni Háskólans voru veitt verðlaun til þess liðs sem hjólaði hlutfallslega flesta kílómetra í vinnuna miðað við fjölda þátttakenda. Þriggja manna liðið Hagi – klikkaðir kílómetrar reyndist þar í sérflokki en það lagði að baki rúma 1768 kílómetra þá daga sem keppnin stóð yfir.

Liðið skipa þau:

  • Elín Valgerður Magnúsdóttir
  • Haraldur Halldórsson og
  • Björn Þorgilsson

sem starfa öll á Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði í Haga, en þess má geta að þau sigruðu einnig í innanhússkeppninni í fyrra.

Meðalvegalengd hvers liðsmanns reyndist um 588 kílómetrar og þessi gríðargóði árangur skilaði liðinu fjórða sæti í kílómetrakeppni Hjólað í vinnuna

Björn Þorgilsson, Elín Valgerður Magnúsdóttir og Haraldur Halldórsson